2 daga detailnámskeið í einu flottasta detail studio'i landsins!

Kennari: Steini, eigandi Steinabón ehf

Á þessu námskeiði verður farið yfir öll helstu atriði þegar það kemur að því að lakkleiðrétta og keramík húða bíl. Þetta námskeið hefur verið kennt síðan 2020.

Fyrir hverja?

  1. fyrir fagaðila sem vinna við starfið og vilja komast á næsta level með bættri þekkingu
  2. fyrir byrjendur sem hafa prófað sig eitthvað áfram en öðlast dýpri skilning
  3. einnig fyrir aðila sem hafa aldrei massað/keramik húðað áður, en vilja komast í að læra ferlið

Námskeiðið innifelur: 

  1. Kennt á fræðina með glærusýningu (fræðin útskýrð, efnin útskýrð, sagan og upphafið frá 1950, tips og tricks)
  2. Kennt á DA hjámiðjuvélar (nýji skólinn) og rotary vélar (gamli skólinn)
  3. Kennt er á öll efnin í línunni sem þarf til að læra að ná lakkinu sem bestu aftur. (grófmassi, milligrófur massi, fínn massi o.s.f)
  4. Farið yfir sandslípun/wetsanding
  5. Kennd þau handbrögð, hugtök og fræði sem gefa þér stökk til að komast á næsta level í lakkleiðréttingu!
  6. Kennt er á aðeins alvöru keramik varnir í hæsta gæðaflokki sem aðeins fagmenn mega hafa aðgang að og þurfa réttindi fyrir
  • D.Quartz (grjóthart base coating)
  • C.QuartzProfessional (sleipt og vatnsfælandi top coating)

Annað:

  1. Stéttarfélög hafa verið að greiða allt frá 40-100% niður námskeiðið fyrir nemendur okkar í gegnum tíðina. Talaðu við stéttarfélagið þitt hvað það gerir fyrir þig.
  2. Þeir sem sækja námskeiðið munu eiga möguleika á að sækja um réttindi til notkunar á D.Quartz, CQPRO og CQFR (fagaðila keramik varnirnar) ef kröfur standast.
  3. Þeir sem hafa sótt námskeiðið fá fastan 15% afslátt af CARPRO, AutoFinesse og Rupes til framtíðar!
  4. Námskeiðið er 08:00 - 18:00 Laugardag og Sunnudag (10klst á hvorn daginn)
  5. Matur og drykkur innifalið
  6. ATH: Staðfestingargjaldið er 50.000kr (greitt hér í netverslun) en heildargjaldið er 100.000kr (seinni 50.000krónurnar greiðast eftir námskeiðið)